Góðir Íslendingar.

Vart verður annað um okkur Íslendinga sagt en að við séum sáttfús. Fyrirgefum öllum þeim er stigu feilsporin stór og smá, hjálpum þeim á lappir á ný. Bíðum meira að segja í röðum til að verða fyrst til að sýna elsku okkar og fyrirgefningu. Gangi okkur vel að búa til nýtt samfélag réttlætis og heiðarleika!
mbl.is Margmenni við opnun Iceland
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sannleiksráðuneytin.........

Einkennileg þessi tilhneiging að reyna að breiða yfir söguna, atburði sem skiptu máli á sinni tíð þó aðrir tímar séu
í dag.
Sögunni verður ekki bara breytt eins og ekkert sé. Tíminn mun að lokum breiða hulu sína yfir mannanna verk, sýnum því skilning að menn vilji fagna því sem hafði eitt sinn gildi.
mbl.is Banna öll kennileiti kommúnista
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ó, nei.

Ja hérna, guð forði heimsbyggðinni frá því að fá enn einn Bushinn í þetta valdamikla starf.
mbl.is Stefnir Jeb Bush á Hvíta húsið?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bak við rimla.........hugans

Bak við rimla
mína eigin rimla
heyri hljóðin að utan
gegnum opin glugga.

Gluggi samskiptanna
ógagnsæ minning.
Augu mín lokuð
í kyrrð hugans.

Myndir af lífi og leik
barnsins sem var
dofna í látleysi,
samsemd mín leysist upp.

©Steinart


Kominn tími á nýja nálgun.................

Hvað er til ráða, hvaða kostir eru fyrir hendi í nýjum alþingiskosningum. Engu nýju stjórnmálaafli hefur enn tekist að gera sig gildandi. Og hin mikla hræðsla almennings við breytingar á pólitíska sviðinu er enn til staðar. Trúir frekar þeim öflum sem setið hafa við stjórnvölinn meira og minna frá lýðveldisstofnun. Þ.e.a.s. þessum fjórum til fimm stjórnmálaflokkum sem hafa haldið velli með smávægilegum andlitslyftingum eftir því sem hentað hefur hverju sinni. Almenningur virðist ekki þora að fylkja sér um ný stjórnmálaöfl, vissulega hræða kannski sporin úr síðustu borgarstjórnarkosningum suma, tel sjálfur að þau úrslit hafi kannski aðeins verið okkur til góðs, einhverstaðar verðum við að byrja að velta steinunum ofan af ormagryfjunum. Því miður höfum við almenningur verið of deig í réttindabaráttu okkar, ekki þorað að rísa upp gegn auðvaldskúguninni, höfum selt sálu okkar fyrir lánað fé gegn okurvöxtum sem ríkisvaldið hefur stutt og verndað frá upphafi. Og hvað er því til ráða ef við þorum aldrei að rísa upp gegn úr sér gengnu kerfi. Er það satt að við eigum það skilið sem höfum kosið yfir okkur í undangengnum kosningum, kannski hefur það verið svo, en er ekki kominn tími til nýrrar nálgunar, eigum við ekki að stokka spilin og gefa uppá nýtt...........
mbl.is Þór Saari: Kominn tími á kosningar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bauð þér dús.

Í hringiðu ofskynjana minna

í gegnum glerið tvívíð sýn,

hljómur tilverunnar margsveigður blús.

Í húsi drottins ég bauð þér dús.



Setið með ískaffi í sólskininu.

Og um hvað talar það,
fólkið sem nýtur vorsólarinnar,
hægt auknum hita utanvið kaffihúsin,
þar sem er skjól fyrir norðangarranum.

Já um hvað er talað,
kannski síðustu umræður á Alþingi,
hvort þar séu að verða til haldbærar
lausnir fyrir sligaða alþýðu eða aðeins
enn ein ívilnunin fyrir hina útvöldu.

Nei, "eins og sumir Norðmenn byrja allar setningar",
kannski bara bollaleggingar um eitthvað djúsí á
grillið í góða veðrinu og vínglas á kantinum,
líkt og grillauglýsingarnar hafa sannfært okkur um
að sé normið í grillbransanum.

Kannski snúast samtölin um eitthvað
djúpt úr sálarkirnunum, leyndarmál sem
stíga úr myrkrinu, gömul ástamál,
hrösun á lífsins þrönga vegi.

Og þyngslin sem hefta andann,
hin hversdagslega iðja,
baráttan fyrir salti í grautinn,
salt jarðar sem hleypir upp bragðinu,
bragðið af réttunum og er almenningur
ekki einmitt sífellt beittur brögðum,
gengur sína mörkuðu leið sáttur,
svipugöngin sjálfviljugur.

©Steinart


Samhliða.............tiveruflakk!

Flýgur um huga tær ímynd af hinni sönnu tilveru, hugsanlegri á grundvelli nýrra viðmiða á samhliða jörð. Og hvernig er henni háttað, getur maður verið hér og þar, eða þarf maður að hverfa héðan lífs eða liðinn til að umskapast á nýrri jörð. Hverfur maður kannski héðan og saga manns þurrkast út eins og hefði aldrei verið. Eða skiptist maður upp eins og fruma líkamans, tveir, þrír, fjórir, ótölulegur svermur af mér á ótal tilverusviðum. Er það kannski það sem draumar eru, þegar maður dettur á milli tilverustiga og upplifir sig í öðrum samhliða tilverum........

©Steinart


Takk fyrir.

Gott að sjá að gerlegt er að vernda frelsi okkar með samstilltu átaki þessa ágæta fólks, takk fyrir það.
mbl.is Birgitta og aðrir aðgerðasinnar lýsa yfir sigri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vinsældagredda........

Eðlilegt má það vissulega teljast að tímarit notfæri sér hina ýmsu skinhelgi eða allskyns tabú til að selja sem flest eintök, það er bara eðli fyrirtækja, að reyna að tryggja afkomu sína. Og á forsíðu beggja tímarita er komið inn á eitthvað sem að öllu jöfnu liggur undir yfirborðinu, eitthvað sem er ekki alveg viðurkennt eða þykir skrýtið. Í báðum tilvikum eitthvað sem er kannski á jaðri hins kynferðislega, sem sannarlega er enn hálfgert tabú í það minnsta í Bandaríkjunum eins öfugsnúið og það nú er. Hvað á ég við þegar segi í báðum tilvikum séu snertipunktar við hið kynferðislega; í tilfelli hinnar ungu móður er það aðeins það að sér í bert brjóst hennar sem er nú ekki alveg það viðtekna í heimi almennrar tímaritaútgáfu í Bandaríkjunum og ber brjóst mikil hneykslunarhella, enn verið að tala um brjóstið á Janet Jackson sem datt allt í einu fram úr blússunni er hún var að syngja í hálfleik á einhverjum íþróttaviðburði. S.s. ber brjóst, tilvísun í kynferðislegar athafnir. Hvað varðar blessaðan karlinn hann Obama, þá er hann nú fyrir það fyrsta að berjast fyrir endurkjöri til forseta eins og við öll vitum og menn beita öllum ráðum til að vekja á sér athygli, hann hefur sagt svo margt sem fellur vel í kramið hverju sinni, en efndir loforða og eftirbreytni samkvæmt hinum oft góðu hugmyndum kannski aðeins í óljósari kantinum. Þess utan hafa hin ýmsu ríki Bandaríkjanna nú á síðustu vikum og mánuðum verið að draga til baka leyfi samkynhneigðra til að ganga í hjónaband og því getur Obama engu um breytt, hvort sem hann vill eða ekki!
mbl.is Bitist um lesendur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband