Hvert sem við förum.
2.11.2013 | 11:13
Það var um nótt, líklega að áliðnu sumri að staulaðist heim úr bænum, slompaður en ekki ofurölvi, það hafði ekki gengið vel hjá mér um kvöldið, hafði verið að reyna að heilla stúlku sem lengi hafði haft augastað á, varð ekki kápan úr því klæðinu frekar en oft áður, einmannaleikinn slóst í för með mér heim, upp Túngötuna, til hægri er komið var að Garðastræti og ef hugur var þungur eins og oft bar við er við einmannaleikinn studdumst við hvorn annan var strikið tekið í gegnum Hólavallakirkjugarð, jafnvel sest á bekk og kveikt í sígarettu, farið yfir atburði kvöldsins og særð sálin hugguð ef kostur var, gengið gegnum hliðið við Hringbraut og áfram suður yfir götu, man að er ég beygi af Birkimelnum og geng að Víðimel birtist allt í einu þessi stúlka, virðist hálf ráðvillt, hún var dönsk og hafði orðið viðskila við einhvern sem hún taldi að hefði verið vinur sinn og félagi í nóttinni sem væri hennar síðasta á Íslandi því að hún flygi heim seinna þann daginn, fylgdi með mér heim, áfram suður Furumel og inn Grenimel, annað hús á vinstri hönd, niður fáeinar tröppur að vestanverðu og er innfyrir útidyrnar var komið, gangur, aðrar dyr til vinstri, salerni, þar inni var ætíð geymdur lykillinn, stór gamaldags að hinum fyrstu dyrum til vinstri sem voru mín híbýli, smá en buðu mann samt ætíð velkominn, spjölluðum, trúlegast boðið henni einhvern drykk, hún rekur þar augun í ljóðabók sem hafði nýverið eignast og verið að glugga í áður en fór út um kvöldið, en bókin var einmitt eftir danskt ljóðskáld sem hún kannaðist vel við Henrik Nordbrandt og bókin Hvert sem við förum, já, þá er kannski komið að kjarna málsins eða næturinnar og þess er af henni lifði, ung frjálslynd dönsk stúlka á leið til síns heima að fáeinum tímum liðnum og ungur maður, tvö reköld á lygnum sjó augnabliksins, þá var hugmyndin um að augnablikið væri hið eina sem væri í boði ekki búin að skjóta rótum í huga mér, og aldrei hef ég verið mjög hvatvís, upp í huga minn spratt að þekkti ekkert til stúlkunnar, hún gæti verið smituð af einhverju óæskilegu og veit ekki hvað, eins og maður væri nú alltaf að spá í slíkt, ónei, en tækifærið rann úr greipum, tækifæri til lítillar gleðistundar og unaðar, tíminn leið áfram sína stund og allt í einu var ég einn í öngum mínum, veit þó innst inni að hluti að þessari málalykt var að hugur minn var hjá stúlku sem ekki hafði viljað með mig hafa fyrr um kvöldið, en von mín lifði og einhverskonar trúmenska við stúlkuna sem þó var ekki mín, en átti hjarta mitt á þessu augnabliki, steig minn karmíska dans á mörkum hins skiljanlega.
Hvert sem við förum
Hvert sem við förum komum við alltaf of seint
til þess sem við lögðum forðum af stað til að finna.
Og í hvaða borgum sem við höfum dvöl
eru það þau hús sem orðið er um seinan að snúa aftur til
þeir garðar sem orðið er um seinan að dvelja í eina
tunglskinsnótt
og þær konur sem orðið er um seinan að elska
sem valda okkur hugarangri með óáþreifanlegri nærveru
sinni.
Og hvaða götur sem við þykjumst þekkja
liggja þær framhjá þeim blómagörðum sem við erum að
leita að
og dreifa höfugri angan sinni um hverfið.
Og í hvaða hús sem við snúum aftur
komum við of síðla nætur til að þekkjast.
Og hvaða fljótum sem við speglum okkur í
sjáum við okkur ekki sjálf fyrr en við höfum snúið við
þeim baki.
Henrik Nordbrandt
Hjörtur Pálsson íslenskaði, útg. Urta.
En nú á þessum síðbúna upprifjunartíma reynir maður að halda sig eingöngu við núið, vera meðvitaður um hina skömmu stund, opin augun fyrir tækifærunum sem reyndar virðast láta á sér standa eða kannski sér á sama standa.....................
©Steinart, október 2013
Ljóð | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Friðarhöfðingi :)
24.8.2013 | 13:57
Obama ræðir við ráðgjafa sína | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Já, á vogarskálunum er ástin vegin...............
16.8.2013 | 21:25
Hann situr við skjáinn
teygir sig út í heiminn
reynir að heilla til sín ástina
reynir að vinna ástir í litlum skilaboðum
brosir út í heim hinnar leitandi
rannsakandi ljónynju sem læðist um á netinu og
felur sig í víðáttu hinnar rafrænu skynjunar
færist um sviðið í felulitum
skannar bráð sína
metur og setur á vogarskálar
kannar af innsæi kosti og galla
stillir upp sem væri sakbending.
Reyni að koma vel fyrir
horfi út í órætt myrkrið
skynja augun sem meta eigindirnar
strauminn af heitri ljónynju á veiðum
reyni að fá svörun
einhverja tilfinningu fyrir möguleika mínum,
hvort er vel metinn
eða léttvægur fundinn............
©Steinart
Ljóð | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
nálgast hina tæru þekkingu........
2.6.2013 | 12:47
Margföld er nálgun mín, blekking hins venjubundna lífs almúgamannsins er hula ofin úr innprentuðum væntingum frá áróðursmeisturum auðvaldsins. Hef sjálfur gengið göngin, farið um völundarhúsið, hlaupið í hringi eins og vel uppalinn rakki. Gert tilætlaðar kúnstir, knúið hamingjuhjól aðalsins eins og hamstur um nótt. Og allt í einu verður manni fært að strjúka huluna frá augunum ef maður vill, en standa þá líka í eyðimörkinni, sviptur táknum hinnar ytri staðalímyndar.
Já, nakinn í eyðimörk hinnar táknrænu skilgreiningar, sviptur hinum ytri einkennum stéttar þinnar. Rétt eins og Adam, hinn fyrsti maður sem hafði í hendi sér alla hugsanlega möguleika hinnar nýju verundar á jörðu hér.
Og hvar hefur lífsins straumur borið okkur, haldreipið er hið innra, veröldin öll er eins og við höfum gert hana, við getum gert hana að einhverju öðru ef við viljum það.
Í upphafi vorum við alls megnug, sköpunin var í okkar höndum en um leið líka hin öflugu eyðingaröfl.
©Steinart
vindur fram, hreyfir..........
15.4.2013 | 00:03
Sit við og bíð þess að andrúm mitt hreyfist, ferskur vindsveipur hleypi fjöri í hugsanir mínar og athafnir. Að þú birtist mér í huganum og opnir fyrir hina sönnu lind sköpunarinnar. Þú mín fagra músa, strjúkir huluna frá augum mínum og hleypir hinni tæru sýn almættisins inn í vitund mína. Og orðin safnist í net mitt sem strengt hef í nærumhverfi mitt, geri þá að aflanum og beri fram á hvítum fleti vitundar okkar.
©Steinart
Ljóð | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
sem í Edensranni.............
13.4.2013 | 15:14
Veit ekkert um sannleiksgildi þessa, en það sem á að verða, verður.
--------------------------------
Okt. 2012
sem í Edensranni............
Í gönguferð
um velli græna
blíður andvari
sól í heiði
ljúfur kliður árinnar
sem rennur sinn veg
fuglar byggja framtíð
ungum sínum tilvonandi
dýr merkurinnar spök
sem í Edensranni
ný jörð, nýr sáttmáli
á himnafestingunni
nýr fylgihnöttur
Nibira hin dularfulla
hvaðan kemur nýi
sannleikur........
©Steinart
Ljóð | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
rétti út hönd mína.........
23.3.2013 | 16:06
Smá umhugsun um hvernig stefnumót fara fram á samskiptavefjum nútímans......
rétti út hönd mína...............
Sæl vina, var að leita á síðunni þinni að því í hvaða stjörnumerki þú værir, ætlaði að sjá út hvernig við myndum passa saman, þó ekki væri nema til að verða staðfastari í þeirri trú minni að við gætum átt ágætlega saman sem par. Já, veit að þetta er ekki það rómantískasta sem þú hefur séð en hvernig á að nálgast í dag, gefa stelpu undir fótinn nema í gegnum hina alltumlykjandi tækni, myndi senda þetta bréfkorn með bréfdúfu, ætti ég eina slíka. En s.s. hef verið að spá í þetta allt saman, mér líkar vel við þig, veit að við þekkjumst kannski ekkert svo mikið í dag en trúðu mér, ég er ágætis mannvera og er sannfærður um að þú ert það líka. Þú hugsar kannski með þér afhverju hringir ekki maðurinn heldur, sem er auðvitað góð spurning, en tel samt betra að skrifa þetta litla bréf og gefa þér tíma til að melta þessa uppástungu í eitt augnablik.
Nú þegar augnablikið er runnið inn í eilífðina og svarið berst á öldum hátíðninnar þ.e.a.s. kemur skramblað, dulkóðað og úr vöndu að ráða, vill hún mig, vill hún mig allsekki eða kannski lengri umþóttunartíma, en tíminn rennur út, úr því fagra tímaglasi eilífðarinnar.
Get ég vitað hvort tilfinning mín er sönn, eða er þetta allt saman vottur af síðasta bjargráði sökkvandi manns, síðasta hálmstráið.
Og í höfði mínu bý ég til nýtt leikrit með meitluðum dialog hvar allt mitt rómantíska æði eins og Þórbergur orðaði það svo skemmtilega fær farsælan endi og þau munu svífa inn á lendur hamingjunnar og horfa á sólsetrið til enda.
Eða er það svo, mörg tvíst, snúningar geta orðið í þessum sálardansi samskiptanna, hvar óvæntir fletir koma inn í dansinn, rúmban breytist í breakdans fyrr en varir og hættan á snúnum ökkla margfaldast.
En draumur mun að lokum taka endi og upp verður risið og gengið inn í fagran daginn, sólin vor faðir og jörðin okkar ástkæra móðir munu umvefja líf okkar og kenna okkur nægjusemi og að ástin er allt.......
©Steinart
Ljóð | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Austfirsk þoka.........
8.2.2013 | 22:35
Hughrif, löngunin sem var, hvarf í óminnið, þung voru sporin sem stígin voru eitt af öðru, mjakast upp í ljósið, þrep fyrir þrep, myrkrið sem verið hafði allumlykjandi leystist í sundur eins og þokuslæðingur í austfirskum firði í dagrenningu og útsýnið út fjörðinn gaf tilefni til að lofa hið almáttka afl sköpunarinnar, sólin sendi sitt lífgefandi skin, vermdi hjarta mitt og vakti gleði mína á ný og víst er að hin sanna tilvera er af ástinni umvafin eilíflega................
©Steinart
Ljóð | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Svört bifreið......
3.2.2013 | 21:41
Svört bifreið
rýfur skynjun
á villigötum,
vegvísarnir
sveigja af leið,
upplýsingaskiltið
dofnar í ljósaskiptunum.
Vegurinn á ákvörðunarstað,
vafasamur aflagður þjóðvegur
liðinnar velmegunnar.
Í skuggunum leynast
óvæntir atburðir.
©Steinart
Ljóð | Breytt s.d. kl. 21:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sól og máni....silfurþráður....
3.2.2013 | 21:37
Sólin, máninn og stjörnur
festingarinnar heilla mig
óendanlega.
Í ríki himnanna
breiði út sæng mína.
Tengdur silfurþræðinum
ferðast hvert ég vil.
Í svefninum silkimjúka
spinn ævintýravef.
©Steinart
Ljóð | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)