Seiður...

Magnaður er seiður þinn
kæra vina.
Angist mín hverfur
sem dögg
í sólarupprás hins nýja
tíma komandi.
Skilningur minn dýpkar,
sé til botns
þekkingarvatnsins.
Ferðast upplýstur um í
vitund óendanleikans.
Sé glitta í sannleik
hins alvalda. 

Seductive smile.......

At a crowded place in the midst of night.
A women came my way.
Gave me a beautiful, seductive smile.
Granted me a few cautious, little kisses,
but then went on through.
Vanished, into the city jungle,
browsing.......... 

Innlit......

Horfðu í augu sólarinnar.
Svaraðu spurningum frá
rótum hjarta þíns.
Afklæddu hug þinn
frammi fyrir spegli
sannleikans! 

Ákall......

Ég ákalla ykkur, ofskynjanir.
Kom leys mig úr álögum hversdagsins.
Berið mig í hæðir.
Sýnið mér litadýrð, nýja dýra.
Opnið hug minn, hleypið ferskum
straumum víðsýni inn.
Sýnið mér myndir, atburði forsögunnar. 
Berið mig að fótskör þess alvalda! 

Gæti brugðið til beggja vona.......

Samið líklega 1994
 
Fororð. 
 
Skrýtið hvernig það sem í aðra röndina maður hæddist að verður svo 
raunveruleiki manns á einhverjum tímapunkti lífsins.
Að einhverju leiti hafi þessi prósi þó svartur sé, einhverja forspá
innbyggða í sér. Því engin veit sína ævina..............
 
~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~
 
Gæti brugðið til beggja vona,
líf í heilbrigði eða í
solli vímunnar. 
 
Engin löngun, enginn metnaður.
Tómið eitt.
Þegar ekkert bærist í huganum er þá ekki
tími til kominn að enda partýið!
 
Reka liðið út, hlaða skammbyssuna,
sprautuna!
Hnýta snöruna, klífa upp þak
og mæta dauðanum.
 
Eða hreinlega blása í lúðurinn,
boða til veislu.
Drekka og dópa,
til upphafningar andans
og eða ólífis.
 
Láta sól blekkingarinnar - vímunnar
hita mann og kæta eitt andartak.
 
Eða kannski ganga í
einhvern sértrúarsöfnuð -
láta sefja sig í himinhæðir.
"Glory hallelúja".
 
Mörkin, hvar eru mörkin milli
geðheilbrigði - geðveiki?
 
Hvað er geðveiki?
Að snúast gegn ríkjandi viðhorfum -
siðferði tíðarandans?
 
Hvar máttur fjármagnsaflanna
ræður ferðinni. 
Þú ert þræll langanna þinna.
Og spurningin er;
hvernig komu langanir þínar til.
 
Hver leiddi þig um dal draumanna -
dal neyslunnar.
Hver sagði þér hvað þyrfti
til hamingjuríks lífs?
 
Hver fræddi þig um gildi lífsins -
hvað væri vert að eiga og eignast.
 
Líf neysluþegnsins gleður
púka á sperrum "Kringlanna".
 
Múra sig inn í steypukastala,
fá upplyftingu á miðilsfundum.
 
Já, horfðu á kristalinn þinn,
sjáðu hvernig hann brýtur ljósið.
 
Trúðu á rétt segulmagn.
Straumar - tíska - nýöld!
Hvar er Guð?
 
Ó, þú formyrkvaða veröld á flótta.
Sauðirnir hafa týnt hirði sínum!
 
Hagvöxtur! Töfraorðið.
 
Framleiða - framleiða - endalaust.
Framleiða drasl að selja - selja -
selja - hagvöxtur.
 
Móðir jörð - hún rymur, hún stynur,
þjáð af ofbeldi hagvaxtarins,
hún er opin und.
 
Brennur - myrkvast í eitri.
Ferðafrelsi - helsi blikkbeljanna.
Fljúga landa á milli - hvað er allt
þetta fólk að þvælast - reykur og
eymyrja - hraði - meiri hraða. 
 
Allt þarf að gerast á ofurhraða -
boð á milli landa - framleiðni -
tölvur og róbótar.
Hvaða þörf er fyrir fólk.
Hvaða stærð er það -
helst til óhagkvæmt vinnuafl!
 
Of mikið af tilfinningum,
seinvirkt, ónákvæmt, óhagkvæm stærð!
 
Hvílíkt böl, of margt fólk með of litlar
tekjur til að kaupa,
seinkar óhjákvæmilega hagvextinum.
 
Hvaða ráð eiga stjórnvöld við
aðsteðjandi vanda.
Fólk sættir sig ekki við að eiga enga 
von um atvinnu - eiga ekkert.
Skipta engu máli!
Hvenær springur blaðran?
 
Hvenær blossar bálið?
Hvenær opnast flugskeytaskýlin?
Hvenær hrópast rauðu takkarnir á?
 
Verða málin leyst án allsherjarstríðs?
Stöndum við ekki frammi fyrir því að
þurfa að hreinsa borðið,
svo grundvöllur skapist fyrir
endurskipulagningunni.
 
Þúsundáraríkið verður varla til
fyrr en eftir "Ragnarökin"!
Vona og sjá hvort lifir það af,
fáir að taka þátt í uppbyggingunni.
 
Mín "Útópía" - þín "Útópía".
Fyrirmyndaríkið sem alla er að dreyma.
 
Nýaldarfólk býst við hjálpræðinu utan
úr geimnum.
Kannski vinir þeirra frá
Snæfellsjökli?
 
Ef árangurinn er sá sami s.s. aðeins 
hinir skyggnu sjá og skynja,
þá er varla við hjálpræði að búast þar.
 
Skyggna liðinu verður kannski bjargað í
geimskip rétt á meðan stormurinn geisar.
Lifir vel í glaumi - vellystingum.
 
Komum á jörðina aftur, stöðluð ímynd - útlit.
Hið rétta útlit.
Ganga í augum - elítan.
Réttu samböndin - tengsl í réttar áttir.
 
Trúin gæti bjargað oss.
Veit ekki - kannski ef þú trúir því.
Líttu til sálar þinnar,
rifjaðu upp barnatrúnna,
þér var sagt frá hjálpræðinu.
 
Þegar maður hefur verið svo lengi
ofurseldur firringunni,
tapar maður áttum,
stendur einn trúlaus - einmanna.
 
Oft heyrt þá skilgreiningu síðustu ár,
fólk trúi á guð í sjálfu sér.
Að hið góða og vonda í því sjálfu
berjist um yfirráðin.
Og þar með á þessi skilgreining á guði þeirra að duga,
ef maður spyr, hvað með kirkjuna, Jesús,
hversvegna fermast, giftast í kirkju,
jarða með prestlegum hætti ef guð
er bara hið innra?
 
Af hverju allar þessar serímóníur - siði
ef þeir merkja ekki neitt?
 
Hvern á að blekkja? 
 
Hinn sjálfstæði nútímamaður í sinni vélaveröld,
heldur að vísindin eigi svar við öllu.
Bendir á að goðsögnin um Adam og Evu
standist ekki, þau geti ekki hafa verið hin
sanna byrjun, og hvað með Edensgarð? 
 
Darwin hafi með þróunarkenningunni
umbylt Biblíunni og sögum hennar
um Edensrann.
 
Sagnirnar í raun dæmisögur - líkingar.
 
En tvískinnungurinn - hræsnin,
fara eftir kirkjulegum siðum,
en kukla á kvöldin í spíritisma - skyggnilýsingum -
ásamt trú á steina og kristlla.
Nýöld yndislegur hrærigrautur.
Gamla guðstrúin höfð með ef ..................
sem varnagli.
 
 
Já, kannski er von -
með sameiginlegu átaki. 
 
~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~
 
E.s.
 
Dettur í hug að hefði kannski rétt eins og
James Douglas Morrison átt að henda skrifum
æskuáranna á bál.
 
En það er líka gott að hreinsa út úr sálinni, gömlum
pælingum og hugrenningum með því að varpa
þeim út á veraldarvefinn.
Hina nýju "Akasíukróniku". 
 
Og úr því að Jim Morrison er mættur á blað, en hann var
ljóðskáld og söngvari hljómsveitarinnar "Doors" eða The Doors ef vill.
Nafn sveitarinnar er tilkomið eða dregið af titli bókarinnar;
"The Doors of Perception" eftir Aldous Huxley.
Í þeirri bók lýsir hann eigin upplifunum af skynaukandi lyfjum eins og
LSD og Meskalíni.
Hann er þó líklega best þekktur fyrir bók sína;
"Brave New World" sem kom út árið 1932.
Á íslensku kom hún út árið 1988 hjá MM í þýðingu
Kristjáns Oddssonar og heitir á því ylhýra;
"Veröld ný og góð".
 
En Huxley hafði einmitt mjög skýra sýn á það hvernig 
framtíðin gæti orðið rétt eins og vinur hans Georg Orwell. 
 
Kannski er þessi prósi sem á undan fór
einmitt samin undir áhrifum frá þessum mönnum.
 
Og þá bara þökk sé þeim. 
 
 
 
 

Burtu bornir......

Samið ári eftir snjóflóðið á Flateyri 1995.
 
-----------------------------------------------------
 
Silfurtær var vonin.
Sindrandi björt ætlunin.
En raunveran dimm
vetrarnóttin milli hárra fjalla.
Brotnar voru væntingar,
sem og húsin ástvina,
eftir náttúruhamfarirnar.
Gleðin burtu af Eyrinni,
ei endurómar hlátur vina meir.
Burtu bornir á hvítri slæðu,
upp~upp í himnasal. 

Veðurspár, flóðaspár, jarðskjálftaspár o.f.l.

Set hér inn á síðuna tengil á veðurspárstofu Piers Corbyn, sem spáir í veðrið út frá áhrifum frá sól og mána.
Allt að einu ári fyrirfram er honum unnt að spá fyrir um meginveðrakerfi, hitabylgjur, kuldaköst o.s.f. með allt að 85% vissu. Eins hefur hann getað sýnt fram á samtvinnuð tengsl hinna miklu sólgosa sem nú eru og nálægðar tunglsins við jörðu og jarðskjálftanna bæði á Nýja Sjálandi og í Japan. Og svipaðra skjálfta megi búast við næstu tvö árin.
 
Einnig heldur hann því fram að hlýnun jarðar hafi lítið með losun okkar á koltvísýringi út í andrúmsloftið að gera, heldur séu það einnig helst vegna áhrifa frá sólu.
 
Endilega kynnið ykkur þetta og dragið ykkar eigin ályktanir. 

Skilningur :)

Formáli.
 
Margt af þeim ljóðum og prósa sem hér hefur getið að líta er nokkura ára gamalt, en svo líka nýtt í bland.
Það sem hér fer á eftir er samið 1998.
 
 
------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
 
Verðugt umhugsunarefni í
algerri blindni augnabliksins.
Ljós sem tendrast í myrkum
afkimum heilans.
Skilningur sem fæst með aldrinum.
Sólin kemur upp og hún sest.
Lífið er hringekja,
vonandi eru allar legur í lagi.
Sirkus ~ sjálfur trúður,
með tár á hvarmi.
Purpuralit hugvekja í bítið,
taktur í samræmi við ljósasýninguna.
Á gólfinu þrælast við hraðfjöruganpolka,
undirspilið úr píanóbassatrommu ~ sönglandi
whiskeyröddu Waits.
Bíð sjálfur eftir nýrri múnderingu sem
peppar upp mitt "alter ego".
Diskókúluljósatryllingurinn hefur ei náð í
skott mitt ~ stíft.
Í dansandivellulágrómakonukarlssöngraddarmisþyrmingum ~
lekur sviti tár og blóð.
Þurrausinn gleðigenum,
genabankaígræðslumeistarar í stræk.
Hversdagsleg alltumekkert pæling mitt í
stóratburðum tíðindaleysisins.
Mín sæng útbreidd ~
rétt svona til málamynda.
Hreingerningar ~ í skjalasafni innri heila ~
heil ósköp sem henda má á bál hégómans.
Grænar grundir ~ nýtt mýkingarefni gegn
harðræði lífsins.
Svipast um í golunni, hamingjusöm pils ~
stinn læri , bros og fyrirheit.
Blámi í stofu neysludreymandans.
Fislétt hugmynd að leyndri uppgötvun
í sólarupprás hins nýrri tíma komandi um hæl.
Og afturhvarfið er rétt aðeins byrjunin
á nýrri algamalli hefð.
Upp rís hinn flóknari einfaldleiki lífsgleðinnar mitt í
eylandi sálarinnar vaknandi.
Flosmjúk skynjun hunangsblíðunnar.
Hverfast burt á rósrauðu
skýi algleymisins. 
 

Miðnætti........

Tjáðu mér ást þína um
miðnætti.
Talaðu um drauma þína
miðnætti.
 
Láttu andann fljóta
miðnætti.
Tökum flugið saman
miðnætti.
 
Í himinsælu
miðnætti.
Dansað við engla
miðnætti.
 
Því dagar drauma
og næturdrauma.
Ná hæstum hæðum
miðnætti.
 
Finnum svörin
ráðum gáturnar
miðnætti.
 
Já, föllumst
í faðma
á miðnætti. 
 

Ísland úr NATO!

Er það í raun orðið svo að Nato er ekki lengur varnarbandalag heldur hreint og klárt "árásarbandalag" og verkfæri Bandarískra stjórnvalda. Hefðum við ekki átt að segja okkur úr þessu bandalagi þegar það breytti hlutverki sínu með loftárásum á stríðandi fylkingar í fyrrum Júgóslavíu. Var ekki hlutverk þessa bandalags að vernda aðildarlönd sín ef á þau væri ráðist!
Og hví í ósköpunum ætti Obama að fara með hervaldi gegn Gaddafi, hvaða rétt hefur hann til þess og hefur einhver í  Líbíu æskt þess af honum? Sé heldur ekki að nokkurstaðar þar sem Bandarísk stjórnvöld hafa farið með hernaði hin síðari ár / áratugi í nafni mannréttinda hafi ástandið í mannréttindamálum í viðkomandi löndum batnað eitthvað, síður en svo. Rétt eins og fyrri daginn hangir eitthvað annað á spýtu Obama heldur en mannréttindamál,  væri honum ekki nær að fara að hlúa að sinni eigin þjóð áður en hún veslast upp úr fátækt.  

mbl.is Íhuga hernaðaraðgerðir í Líbíu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband