nálgast hina tćru ţekkingu........
2.6.2013 | 12:47
Margföld er nálgun mín, blekking hins venjubundna lífs almúgamannsins er hula ofin úr innprentuđum vćntingum frá áróđursmeisturum auđvaldsins. Hef sjálfur gengiđ göngin, fariđ um völundarhúsiđ, hlaupiđ í hringi eins og vel uppalinn rakki. Gert tilćtlađar kúnstir, knúiđ hamingjuhjól ađalsins eins og hamstur um nótt. Og allt í einu verđur manni fćrt ađ strjúka huluna frá augunum ef mađur vill, en standa ţá líka í eyđimörkinni, sviptur táknum hinnar ytri stađalímyndar.
Já, nakinn í eyđimörk hinnar táknrćnu skilgreiningar, sviptur hinum ytri einkennum stéttar ţinnar. Rétt eins og Adam, hinn fyrsti mađur sem hafđi í hendi sér alla hugsanlega möguleika hinnar nýju verundar á jörđu hér.
Og hvar hefur lífsins straumur boriđ okkur, haldreipiđ er hiđ innra, veröldin öll er eins og viđ höfum gert hana, viđ getum gert hana ađ einhverju öđru ef viđ viljum ţađ.
Í upphafi vorum viđ alls megnug, sköpunin var í okkar höndum en um leiđ líka hin öflugu eyđingaröfl.
©Steinart
Bćta viđ athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.