Fasisminn í sókn.

Þetta er einmitt það sem er víða að gerast. Stjórnvöld ýmissa ríkja seilast sífellt lengra í eftirliti sínu á almenningi. Og í mörgum tilvikum höfum við ekki veitt þá mótspyrnu sem eðlileg hefði verið. Höfum gefið eftir frelsi okkar sökum hræðslu við utanaðkomandi ógn sem sífellt er verið að telja okkur trú um að sé raunveruleg eins og t.d. hin meinta hryðjuverkaógn. Tími til komin að við vöknum og reynum að vernda persónufrelsi okkar.
mbl.is Twitter gert að afhenda upplýsingar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: hilmar  jónsson

Já þetta er eiginlega hálf scary..

hilmar jónsson, 10.11.2011 kl. 23:03

2 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Opin og aðgengileg stjórnsýsla heimsins, er eina réttlætanlega og mannúðlega leiðin, til að koma í veg fyrir tortímandi gjöreyðingu fárra sjúkra manna í heiminum til að fremja ódæðisverk. Sú staðreynd er ekki einskorðuð við Ísland eða Evrópusambands-stjórnina.

Það þvælist fyrir okkur öllum, hvar eðlilegu mörkin eiga að liggja milli stjórnsýslunnar og einkalífsins.

Miðstýringar-skóla-stjórnun heimsins hefur leitt til ó-réttlætis fyrir almenning. Almenningur borgar fyrir menntunina í háskólunum með skattagjöldum af sínu vinnuframlagi.

Því miður er oftar en ekki ó-skólagengið fólk á lægstu laununum, þrælar án lífsafkomulauna, ásamt heiðarlega reknum fyrirtækjum, sem vinna fyrir öllum skóla-herlegheitunum með sínum sköttum.

Wikileaks, Tvitter og allir aðrir, sem hafa möguleika og kjark til að upplýsa um gjörspillingu heimsins á heiðarlegan hátt, hafa 100% minn stuðning.

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 11.11.2011 kl. 00:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband