Já, Ísland úr Nató.

Já, og þó fyrr hefði verið. Um leið og varnarbandalagið gerðist árásarbandalag undir stjórn BNA árið 1999, þá áttum við að ganga úr þessum félagsskap. Morð á saklausu fólki, eyðilegging og mengun sem af starfsemi þessa „stríðsverktaka“ Nató hefur staðið fyrir er í það minnsta ekki með mínu samþykki. Ef einhverntíma eru ástæða til að bera eitthvað undir þjóðina þá gæti þetta mál vissulega flokkast undir það.

mbl.is Tillaga um úrsögn úr Nató
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Nató er árásarbandalag en ekki varnarbandalag.  Það sér einvörðungu um skítverkin fyrir USA og EU.  Preemtive war. Það er að sprengja einhvern í tætlur il að koma íveg fyrir að viðkomandi þjóð geti hugsanlega hugsað sér einhverntíman að ógna öðrum þjóðum.

Svipað og að láta rífa úr sér tennurar um 10 ára aldurinn til að koma í veg fyrir tannskemmdir.

Jón Steinar Ragnarsson, 31.5.2011 kl. 01:49

2 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Nýleg fjöldamorð á börnum og konum í Afganistan hefði átt að fylla mælinn, en friðarsinarnir í vinstriflokkunum eflast bara í Natótrúnni fyrir vikið.

Það er jú friðarverðlaunahafi sem stýrir flestum stríðum á jörð.  Við skulum heldur ekki gleyma  að Henry Kissinger hlaut friðarverðlaunin...já og Arafat og Simon Peres og Menachem Begin...

Orwell hlýtur að hafa bylt sér nokkra hringi í gröfinni. 

Jón Steinar Ragnarsson, 31.5.2011 kl. 01:56

3 Smámynd: Steinar Þorsteinsson

Já satt er það að oft hefur maður orðið undrandi á því hverjir hafa hlotið friðarverlaunin.

Steinar Þorsteinsson, 31.5.2011 kl. 20:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband