VR kosningar!

Mikið þykir mér þetta döpur kosningaþátttaka.
Eins og auðvelt var að kjósa, þægilegt að kynna sér það sem frambjóðendurnir
höfðu fram að færa, hægt var að horfa á kynningarfund VR á öllum þeim sem í
framboði voru á heimasíðu VR. Og greiða svo atkvæði sitjandi heima við tölvuna,
auðveldara verður það varla. Vart getur félagsfólk VR agnúast mikið út í störf
og þá stjórnarstefnu sem upp verður tekin af nýkjörinni stjórn, meirihluta
félagsmanna virðist standa á sama. Við breytum vart nokkru á sviði félagsmála og
almennt nema með þátttöku okkar þar sem okkur gefst kostur á. 
 
Atkvæði greiddu 4.867. Á kjörskrá voru alls 28.419. Kosningaþátttaka var því  17,13%. 

mbl.is Stefán kjörinn formaður VR
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Óskar Aðalgeir Óskarsson

Alveg er þetta dæmigert fyrir Íslendinga. Rúm 80% félagsmanna VR nenntu ekki að lyfta fingri til að kjósa. Nú kemur þetta lið fram og grenjar yfir úrslitunum. Þið eigið að skammast ykkar.

Óskar Aðalgeir Óskarsson, 30.3.2011 kl. 20:22

2 Smámynd: Tinna Gunnarsdóttir Gígja

Ég kaus. Ég sagði mig svo úr VR um leið og úrslitin voru ljós. Ég hef ekki mikla trú á að félagið komi óskaddað undan siðlausa siðfræðingnum.

Tinna Gunnarsdóttir Gígja, 31.3.2011 kl. 08:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband