geim......

Löngunarfull þrá, þráhyggja um hið fallegasta líf í hinum fegursta heimi, hér í geimi og öll erum við jú geimverur á hröðu flugi í þessum algeimi þessu gímaldi sem virðist endalaust og ég svíf á mínu sæluskýi ofskynjunarinnar eða kannski aðeins hugdettunni um draum raungerðan í vökunni og allt er mögulegt hin eina hindrun er ímyndunarleysið, en hið dúnmjúka þyngdarleysi gerir mann fráhverfan hinni raungerðu jarðnesku lifun með sín hversdagslegu vandamál og ég svíf til fundar við “Major Tom” eða kannski skapara okkar mannanna, guð eða guðina sem voru geimverur nú eða Osiris sjálfan hvað veit ég í minn haus, engar haldbærar sannanir, sögur já, endalausar sögur, sumar bý ég jafnvel til sjálfur og þar sem ég svíf í hinu algera tómi lífs míns og reyni að uppdikta tilganginn sem helgar meðalið sem við tökum við einmannaleikanum sára, já hugmyndin um hið mikla ríki handan dauðans hefur lengi fengið okkur arma þrælana til að þrauka gegnum þykkt og þunnt, svíf í miðjum draumi mínum til stefnumóts við skapara góðra sagna, á leiðinni dembi mér á bólakaf í “Akasíukrónikuna” hið varðveita orð sem er þarna allt í kringum oss í “Matrixinu” sumir kalla það hið skráða orð í lífsins bók og Pétur með lyklavöldin kíkir við komu þína á registerið og kveður upp um hvar næsti viðkomustaður þinn verður, já verður það ekki gaman, kannski færðu aftur að stíga jarðdansinn, dansa fjörugt Salsa, stíga ákveðin í Tangóinn, ráða förinni um nýjan lífsins veg :)

 

©Steinart


í upphafi........

Það má taka á flug með tónlistinni, óheftu flæði hugmynda, já þessara skynhrifa sem liðast um í andrúmi voru.

 

Myndir sem kvikna í hugskotum okkar þar sem við ferðumst í guðdómlegri sælu tónsins.

 

Í upphafi var hinn sanni tónn og sálir okkar urðu til í hinni fyrstu hugsun og okkur var allt kleift.

 

Í óratíma nærðumst við á hinum guðdómlega tóni og eigin hugsun en brátt vildum við skapa og sköpunin var á okkar valdi, óheft.

 

En fram leið tíminn og tónninn varð litríkari, þykkari í blæbrigðum sínum og symfónía margbreytileikans tók að hljóma undurfagurt.

 

Og sálirnar ákváðu að líkamnast.

 

©Steinart

 

 

 


árstíð....

Krafla í heilabörkin, reyni að vekja upp einhverja ferska hugsun. Lífleysi vetrarins hvílir þungt yfir huganum eins og þykk værðarvoð ofin úr andvana fæddum hugmyndum. Sumarið reynir að brjótast undan kaldri krumlu vetrarins, vetur konungur gefur ekki svo glatt eftir sín yfirráð. Í fjörbrotum nýrrar árstíðar glittir í örsmáa heita von. 

©Steinart 25. apríl 2015


Einkennilegt er allt það ráðslag.............

Fremsta skylda stjórnvalda hlýtur að vera að gera öllum þegnum landsins kleift að lifa mannsæmandi lífi.

Vel má vera að nauðsynlegt að endurnýja ýmsan búnað sem ríkisstofnanir nota, sýnist þó margt gæti komið á undan endunýjunar vopnasafnsins. Sem betur fer eigum við íslendingar því láni að fagna að hér er ekki oft þörf fyrir því að beita skotvopnum, því varla mikil þörf á að endurnýja það sem vart hefur verið notað, nema kannski að svo mikil framför hafi orðið í hönnun hríðskotariffla, og þeir því afkastameiri fyrir vikið, við viljum jú alltaf gera vel og mikið það sem við gerum.

Og tel nú hættuna af þessum "nýju" hryðjuverkasamtökum ekki vera á þeim skala að um sé að ræða heimsógn. Hvað þá að kalla framferði eins manns sem byrjar að skjóta á fólk í Ottawa í Kanada hryðjuverkaárás, Kanadísk stjórnvöld virðast þó ætla að nýta tækifærið til að herða aðeins á ýmsum reglum þ.e.a.s. aðeins að þrengja að frelsi þegnanna með því fororði að sjálfsögðu að verið sé að auka öryggi þeirra. Höfum heyrt þetta áður og fundið fyrir því.


mbl.is „Getum ekki stungið höfðinu í sandinn“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég spyr............og velti vöngum...

Það er orðið svo margt sem gerist í íslenskri stjórnsýslu og rekstri ríkisins undir stjórn hægri flokkanna að maður getur ekki annað en haldið að þeirra áætlun sé að rústa öllu því velferðakerfi sem þó hefur tekist að byggja upp hér í gegnum árin. Ekki var svo sem mikið betra ástandið hjá síðustu ríkisstjórn, hví er komið í veg fyrir t.d. að upp verði tekin ný stjórnarskrá þar sem auðlindir þjóðarinnar verði færðar til þjóðarinnar á ný, að afnumin verði sjálftökuréttur fáeinna fjölskyldna í landinu. Er ekki augljóst að þegar búið verður að fæla allt sæmilega menntað fólk frá landinu þá munu innviðirnir hrynja. Og eftir verðum við sem síðri hafa menntunina, á lágkúrulegum launum, hin fátæka stétt, enn á ný komin í vistabönd bændahöfðingjanna og núna kvótakónganna líka. Þeirrar stéttar sem hélt þessu landi í niðurlægjandi örbirgð í árhundruð en veittu sjálfum sér og sínum vel. Og hvað vilja þessir pólitísku flokkar gera til að leiðrétta kjörin í þessu landi, hvar eru verkalýðsfélögin og meðlimir þeirra, við fólkið, víst er að við verðum líka að taka þátt í að bæta kjör okkar og taka þátt í verkalýðsbaráttunni, mæta til kosninga. Og ef okkur finnst að það sem boðið er upp á að kjósa á milli sé aðeins sitthvor hliðin á sama peningnum þá verðum við kannski að taka til annara ráða. Er kannski að renna upp sá tími að við verðum í alvöru að taka til nýrra ráða, því lítið gagnast okkur að kjósa sífellt yfir okkur drengina og stúlkurnar sem koma úr hinum vel smurðu pólitísku maskínum hins íslenska lénsveldis. Því eitt er víst að okkar kæra fósturjörð býr yfir miklum auðæfum, en það eru aðeins fáir sem hafa hrifsað þau til sín, það er komin tími til að spilin verði gefin upp á nýtt, sanngjarnlega til okkar allra sem byggja þetta land og viljum byggja það um ókomna framtíð.

Hrafnar.

Svartur Hrafn
breiðir út vængi
stefnir til sólar
með hið niðdimma
úr huga mér.

Hreinsast í eldi
endurskapast
eins og fuglinn Fönix.

Rísa úr ösku
hinna forgengilegu
væntinga og vona.

Svífa á ný
til manna
Hvítur Hrafn.

©Steinart 16. apríl 2014



Já, ótrúlegt............. :)

Gott að slá varnagla strax. Svo gæti maður hugsað sér að næsta úr þessum ranni verði; Því miður verður upphæðin sem útdeilt verður mun minni vegna fjölda umsókna. Og lítið leggst fyrir heimsmetið hans Sigmundar Davíðs og hans meintrar eigin snilli.
mbl.is Umsóknirnar fleiri en var áætlað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eigi samkvæmt lögum..........

Obama og Cameron eru löghlýðnir.........haha :)
mbl.is Rússar vilja í mannúðarleiðangur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

kannski......

Það sem maður hugsar og það sem maður gerir er tvennt af

ólíku tagi en kannski mun einn daginn verða breyting á

og hin tæra verund taka yfir, lífið verður ein heild.


hógværð.....

Og í hugarfylgsninu

verður stundum til

þetta tóm, eitthvað

sem er ekki neitt en

fyllir samt út í allar

glufur og kemur í veg

fyrir að upp spretti

hugsun ný og falleg,

sem gæti á sinn

hógværa hátt bætt

heiminn í eitt andartak.


©Steinart 2014



Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband